SKIP TO CONTENT
Ábyrgð

Ábyrgð Peugeot bíla

 

 


5 ÁRA VERKSMIÐJUÁBYRGÐ



Frá og með 1. september 2026 njóta allir nýir Peugeot bílar 5 ára verksmiðjuábyrgðar eða að 100.000 km, hvort sem kemur á undan.

Ábyrgðin er víðtæk verksmiðjuábyrgð sem gildir fyrir bæði fólksbíla og atvinnubíla og nær til framleiðslugalla samkvæmt ábyrgðarskilmálum Peugeot.

Rafbílar (100% rafknúnir) og tengiltvinnbílar Peugeot njóta jafnframt 8 ára ábyrgðar á drifrafhlöðu eða að 160.000 km, hvort sem kemur á undan. Ábyrgðin tryggir að hleðslugeta drifrafhlöðunnar fari ekki undir 70% á ábyrgðartímanum.


SKILMÁLAR

Til að ábyrgðin haldi gildi sínu þarf að þjónusta og viðhalda bifreiðinni samkvæmt fyrirmælum framleiðanda eins og fram kemur í þjónustuyfirliti, þjónustubók og eigandahandbók.

Við afhendingu nýrrar bifreiðar fer söluráðgjafi yfir þjónustuáætlun bifreiðarinnar. Kostnaður vegna reglubundinnar þjónustu og viðhalds er ávallt greiddur af eiganda bifreiðarinnar.

Bilun sem rekja má til breytinga á bifreið, notkunar á röngum olíum, röngum varahlutum eða íhlutum, skorts á viðhaldi eða rangs viðhalds telst ekki framleiðslugalli og fellur því ekki undir ábyrgð.

Ábyrgðin nær ekki til óbeins kostnaðar, svo sem tekjutaps, hagnaðartaps, dráttar, flutnings, gistingar, símakostnaðar, eignatjóns eða glataðra verðmæta.

 

Ábyrgð fyrri árgerða

Ábyrgð Peugeot hefur tekið breytingum í gegnum árin. Fyrir eldri bifreiðar gilda þeir ábyrgðarskilmálar sem voru í gildi við kaup eða nýskráningu bifreiðarinnar.

  • Frá 1. september 2026: 5 ára verksmiðjuábyrgð eða að 100.000 km.
  • Frá 1. janúar 2025 til 31. ágúst 2026: 7 ára ábyrgð eða að 100.000 km samkvæmt viðbótarábyrgð Brimborgar.
  • Frá 28. október 2020 til 31. desember 2024: 7 ára ábyrgð eða að 140.000 km.
  • Frá 1. júní 2019 til 27. október 2020: 5 ára ábyrgð eða að 100.000 km.
  • Fyrir 1. júní 2019 giltu 2 ára ábyrgðarskilmálar.

 

Mikilvæg ábending

Til að tryggja öruggan rekstur bifreiðarinnar og viðhalda ábyrgð er mikilvægt að fylgjast reglulega með:

  • vélarolíu,
  • kælivökva,
  • hemlavökva,
  • loftþrýstingi í dekkjum,
  • ljósabúnaði.

Reglubundið eftirlit og þjónusta samkvæmt fyrirmælum framleiðanda stuðla að öruggum akstri og hámarka endingu bifreiðarinnar.


HVERT SNÝ ÉG MÉR VARÐANDI ÁBYRGÐAVIÐGERÐIR?



Þú ferð með Peugeot bílinn þinn ásamt eiganda- og þjónustuhandbók á Peugeot verkstæði Brimborgar eða til viðurkennds þjónustuaðila Peugeot utan Reykjavíkur. Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Peugeot geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð.

 

Ef upp kemur bilun sem eigandi bíls telur að sé vegna galla og falli því undir ábyrgð er mikilvægt að eigandi komi með bílinn án tafar á viðeigandi verkstæði svo hægt sé að ganga úr skugga um hvort um galla sé að ræða, hvort bilun falli undir ábyrgð og hvort ábyrgð sé enn í gildi. Dráttur á að hafa samband og koma með bíl í skoðun vegna bilunar getur haft áhrif á réttindi þín til að fá galla bættan án kostnaðar.

 

VIÐ ERUM Á ÞREMUR STÖÐUM Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU

Við erum á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu, auk þess sem við erum með þjónustuðila víðsvegar um landið. Við tökum við bókunum í þjónustuskoðanir og viðgerðir á vefnum.

 

Bíldshöfði 8, Reykjavík

Jafnasel 6, Reykjavík

Dalshraun 5, Hafnarfirði

Þjónustuaðilar Peugeot um land allt