SKIP TO CONTENT
Varahlutir
PEUGEOT VARAHLUTIR

Varahlutir frá framleiðanda veita hugarró

Framleiddir samkvæmt ströngustu gæðakröfum

 

Peugeot varahlutir eru framleiddir samkvæmt ströngustu gæðakröfum. Upprunalegir Peugeot varahlutir tryggja að bíllinn þinn haldi sínum góðu eiginleikum. Réttur varahlutur er lykilatriði í viðgerðum, sparar sporin, tryggir hámarksgæði og að viðgerðin gangi hraðar fyrir sig.

 

Peugeot bílar eru framleiddir af Stellantis group, einum stærsta bílaframleiðanda Evrópu. Varahlutir á lager í úrvali tryggir hátt þjónustustig hjá Brimborg og hagkvæm verð á varahlutum. Fyrirtækið notar öflugt upplýsingatæknikerfi til að tryggja að réttu varahlutirnir séu pantaðir á lager í samræmi við eftirspurn.

 

Pantanir varahluta og fyrirspurnir er hægt að senda í gegnum vefinn með því að smella hér. Einnig er hægt að sérpanta varahluti sem ekki eru til á lager. 

 

Ábyrgð varahluta er kappsmál hjá Brimborg sem leggur mikla áherslu á að bjóða aðeins varahluti til sölu sem uppfylla ströngustu gæðakröfur. Komi í ljós galli í varahlut sem Brimborg hefur selt eða sem Brimborg hefur notað við viðgerð á einhverjum verkstæða sinna verður hann að sjálfsögðu bættur að fullu skv. skilmálum.