SKIP TO CONTENT
Vegaþjónusta Peugeot

PEUGEOT VEGAÞJÓNUSTA

 
VEGAÞJÓNUSTA PEUGEOT
ÞÚ GETUR TREYST Á OKKUR

 

Nýttu þér vegaþjónustu Peugeot ef ökutæki þitt stöðvast (vegna bilunar eða slyss). Við munum annast bílinn fyrir þig svo þú getur haldið ferðinni áfram. Allir Peugeot bílar eru með vegaþjónustu skv. sérstökum skilmálum Peugeot að því gefnu að þú farir árlega í þjónustuskoðun með bílinn þinn á viðurkennt Peugeot verkstæði sem skráir þjónustuna í þjónustukerfi Peugeot framleiðandans. 

FERÐASTU ÁHYGGJULAUST

Peugeot vegaþjónusta er í boði ef ökutæki bilar eða lendir í slysi. 
Sérfræðingar Peugeot mun gera sitt besta til að koma þér aftur af stað, annaðhvort með vegaþjónustu eða með því að draga bílinn á næsta viðurkennda Peugeot verkstæði.    


AÐSTOÐ Í BÍLINN

Ef slys verður, bilun eða annað atvik getur þú notað aðstoðarhnappinn til að tryggja skjót og skilvirk viðbrögð. Ef um alvarlegt slys er að ræð, styðjið á SOS hnappinn sem hefur tafarlaust samband við neyðarlínuna.

Ef ökutæki þitt lendir í árekstri hringir ökutækið sjálft í neyðarnúmer án þess að þú þurfir að gera nokkuð. Ef upp kemur bilun eða annað atvik getur þú haft samband við Peugeot Connect Assistance með því að nota "Peugeot Ljóns" hnappinn í loftinu.