ÁBYRGÐ PEUGEOT BÍLA
Ábyrgð nýrra bíla á Íslandi skv. íslenskum lögum er í megindráttum þannig að kaupandi hefur rétt til að bera fram kvörtun um galla í bíl í allt að tvö ár frá afhendingu bifreiðarinnar. Það er lögbundið að veita einstaklingum (neytendum) þennan rétt en lögaðilar (fyrirtæki) geta samið sig frá lögbundinni ábyrgð bíla. Geri þeir það ekki gildir lögbundni tveggja ára kvörtunarrétturinn.
7 ára ábyrgð og 8 ára drifrafhlöðuábyrgð
Brimborg býður nú alla nýja Peugeot bíla sem keyptir eru hjá Brimborg með 7 ára ábyrgð eða að 140.000 km. hvort sem á undan kemur km fjöldi eða tími og 8 ára drifrafhlöðuábyrgð. Ábyrgðin er víðtæk verksmiðjuábyrgð sem gildir fyrir bæði fólksbíla og atvinnubíla. Peugeot bílar sem ganga að öllu leiti (100% hreinir rafbílar) eða einhverju leiti fyrir rafmagni (tengiltvinn rafbílar) og eru þ.a.l. með drifrafhlöðu eru með 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu eða að 160.000 km, hvort sem á undan kemur tími eða km fjöldi. Ábyrgð drifrafhlöðunnar miðast við 70% hleðslugetu drifrafhlöðunnar. Með reglulegri þjónustu og viðtækri verksmiðjuábyrgð nýrra Peugeot bíla frá Brimborg tryggir þú þér meira öryggi, lægri rekstrarkostnað, hærra endursöluvirði og hraðari endursölu.
Til að viðhalda ábyrgðinni þarf að viðhalda bifreiðinni samkvæmt ferli framleiðanda eins og kemur fram í þjónustuyfirliti frá framleiðanda / þjónustubók / eigandahandbók sem þú færð með bílnum. Einnig geta upplýsingarnar verið gefnar upp á stafrænan hátt í appi eða í mælaborði bifreiðarinnar og er mikilvægt að fylgja þjónustunni. Algengt þjónustueftirlit Peugeot bifreiða er árlega eða á 15.000 km fresti hvort sem á undan kemur tími eða km fjöldi. Þessi regla getur þó verið breytileg á milli undirgerða og vélargerða. Við afhendingu nýrra bifreiðar fer söluráðgjafi nánar yfir þjónustuyfirlit bifreiðarinnar. Kaupandi ber kostnað af reglulegu þjónustueftirliti.
Athygli er vakin á því að 7 ára Peugeot ábyrgð er skv. sérstökum skilmálum en tók gildi 28.10.2020. Frá 01.06.2019 – 27.10.2020 var 5 ára ábyrgð en fyrir þann tíma var ábyrgð Peugeot bifreiða 2 ár skv. skilmálum.
Hvert sný ég mér varðandi ábyrgðarviðgerð?
Þú ferð með Peugeot bílinn þinn ásamt eiganda- og þjónustuhandbók á Peugeot verkstæði Brimborgar eða til viðurkennds þjónustuaðila Peugeot utan Reykjavíkur. Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Peugeot geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð.
Panta tíma í ábyrgðarviðgerð á verkstæði Peugeot
Þú getur pantað tíma á verkstæði Peugeot hér á vefnum. Þegar þú hefur bókað tíma þá færð þú mjög fljótlega staðfestingu í sms með nánari leiðbeiningum. Síðan munum við minna þig á tímann fjórum dögum áður en þú átt að mæta og aftur minnum við á daginn áður. Þú finnur lausan tíma, bókar tíma eða afbókar hjá verkstæði Peugeot hér: