MODUWORK - FELLANLEGT SÆTI OG LÚGA Á ÞILI TIL AÐ FLYTJA LENGRI HLUTI
Moduwork innréttingin í Peugeot Expert gerir þér kleift að stækka hleðslurýmið
með opnanlegri lúgu og niðurfellanlegu framsæti. Moduwork innréttingin gerir
þér kleift að flytja allt að 4,026 m langa hluti.
BAKKMYNDAVÉL OG BLINDPUNKTSAÐVÖRUN
Bakkmyndavél og blindpunktsaðvörun eru hluti af ríkulegum staðal- og öryggisbúnaði.
Bakkmyndavélin sýnir svæðið næst bakhluta bílsins og sýnir fjarlægðir
með línum - 1m og 2m ásamt því hvernig aksturstefna bílsins er með tilliti til stöðu stýrisins.
Nálægðarskynjarar að framan og aftan gefa hljóðmerki til ökumanns og auka þannig
enn á öryggið. Blindpunktsaðvörunin lætur ökumann vita ef bíll er í blinda
punktinum með hljóðmerki og litlum ljósmerkjum í hliðarspeglunum.
ÞÆGILEG HLEÐSLUHÆÐ
Peugeot Expert er þriggja sæta sendibíll með þægilega hleðsluhæð sem
auðveldar alla lestun og affermingu. Hæð hleðslurýmis er 1397 mm og breidd
hleðslurýmis 1628 mm, breidd hliðarhurðaropnun er frá 745-935 mm.
Burðargeta Expert er 1.000-1.200 kg.
ALLT AÐ 6,6 M³ HLEÐSLURÝMI
Peugeot Expert sendibíll er fáanlegur í tveimur lengdum; millilangur og langur.
Rúmmál hleðslurýmis er allt að 6,6 m3 með Moduwork innréttingingu,
fellanlegu sæti og lúgu á þili til að flytja lengri hluti.
7 ÁRA ÁBYRGÐ Á PEUGEOT
Gæði Peugeot eru einstök enda í boði með víðtækri ára ábyrgð á
bílnum í heild. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og
er háð því að bíllinn fylgi ferli framleiðanda hvað varðar þjónustuskoðanir.
Kynntu þér allt um Peugeot Expert hér á vefnum. Í Vefsýningarsal finnur
þú Peugeot Expert bíla á lager og í pöntun, finnur draumabílinn,
sendir fyrirspurn og færð svar um hæl. Einn af mörgum kostum forpöntunar er
að þú getur sett þinn draumabíl saman með aðstoð söluráðgjafa Peugeot.
Einfaldaðu bílakaupin. Láttu okkur sjá um allt, uppítöku á gamla
bílnum, hagstæða fjármögnun.
Komdu og keyrðu Peugeot Expert og láttu gæðin heilla þig!