225 HESTÖFL OG ALLT AÐ 54 KM DRÆGNI Á 100% HREINU RAFMAGNI
Engar málamiðlanir. Vistvænt tækniundur. Komdu og keyrðu.
- Allt að 54 km drægni á 100% hreinu rafmagni
- 225 hestöfl
- Einstök hröðun 5,9 sek. í 100 km
- Hljóðlátur, sparneytinn og vistvænn
NÚTÍMALEG HÖNNUN OG NÝJASTA KYNSLÓÐ AF TÆKNI
Peugeot 508 station PHEV er sparneytinn 225 hestafla langdrægur tengiltvinnbíll
með 8 gíra sjálfskiptingu. Peugeot 508 station PHEV kemur nú með drægni á
100% hreinu rafmagni allt að 54 km og snögga rafhleðslu.
54 KM DRÆGNI Á 100% HREINU RAFMAGNI
Þú kemst hvert á land sem er án þess að hafa áhyggjur af rafmagnsleysi
því tengiltvinntæknin býður upp á einstaka drægni með blöndu af
rafmagni og bensíni. Drægni Peugeot station PHEV er skv. WLTP mælingu
í 100% rafmagnsstillingu er 54 km sem hentar einstaklega vel í allan
daglegan akstur þar sem meðalakstur Íslendinga er 40 km á dag.
FORHITUN - ALLTAF HEITUR Á MORGNANA
Peugeot 508 PHEV er með fjarstýrðri forhitun sem tryggir að bíll er
heitur og þægilegur þegar lagt er af stað. Einfalt er að tímasetja,
stöðva og virkja hleðslu í MyPeugeot® appinu ásamt því að
tímastilla forhitarann.
FULLKOMINN STAFRÆNN HEIMUR MEÐ PEUGEOT i-COCKPIT®
Ökumannsrými Peugeot 508 station PHEV er búinn næstu kynslóð af
tækni; i-Cockpit® mælaborði og stjórntækjum. Við hönnun i-Cockpit var
notagildi og þægindi fyrir ökumann höfð að leiðarljósi þar sem öll
stjórntæki, mælar og skjáir eru í sjónlínu ökumanns.
EINSTÖK ÖRYGGIS- OG AÐSTOÐARTÆKNI
Peugeot 508 station PHEV er með nýjustu kynslóð af öryggis- og aksturstækni
til að tryggja öllum farþegum örugga ökuferð. Í Peugeot 508 station PHEV er veglínuskynjari,
Ökumannsvaki (Driver Alert) og veglínuskynjun (Lane Departure
Warning) Blindapunktsaðvörun, Fjarlægðarstillanlegur hraðastillir
(Adaptive Cruise Control Stop and Go) svo fátt eitt sé nefnt.
7 ÁRA VÍÐTÆK ÁBYRGÐ Á BÍL OG 8 ÁR Á DRIFRAFHLÖÐU
Gæði Peugeot eru einstök enda í boði með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og
sérstakri 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum
af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi ferli framleiðenda hvað varðar þjónustuskoðanir.
Kynntu þér allt um Peugeot 508 station PHEV hér á vefnum. Í Vefsýningarsal finnur þú
Peugeot 508 station PHEV bíla á lager og í pöntun, finnur draumabílinn,
sendir fyrirspurn og færð svar um hæl.
Einfaldaðu tengiltvinn rafbílakaupin. Láttu okkur sjá um allt, uppítöku á gamla bílnum,
hagstæða fjármögnun, tilboð í hleðslustöð og ráðgjöf við uppsetningu.
Komdu og tryggðu þér Peugeot 508 station PHEV og láttu gæðin heilla þig!
225 HESTÖFL OG ALLT AÐ 54 KM DRÆGNI Á 100% HREINU RAFMAGNI
Engar málamiðlanir. Vistvænt tækniundur. Komdu og keyrðu.
SPARNEYTINN, LÁG CO2 LOSUN, 7 ÁRA VÍÐTÆK ÁBYRGÐ Á BÍL OG 8 ÁR Á DRIFRAFHLÖÐU OG LÆKKAÐUR VIRÐISAUKASKATTUR
Verndaðu umhverfið og lækkaðu rekstrarkostnaðinn án málamiðlana. Peugeot 508 PHEV station er á einstaklega hagstæðu verði því hann er með svo lága CO2 losun að stjórnvöld fella niður hluta virðisaukaskattsins við kaup. Nánar um verð og ívilnanir á brimborg.is - smelltu hér.
EINFALDUR Í HLEÐSLU OG ALLRI UMGENGNI
Nýttu þér einfalda tækni Peugeot til að stíga skrefið inn í rafmagnaða framtíð
Hikaðu ekki við að spyrja söluráðgjafa Peugeot um allt sem viðkemur raf- og tengiltvinn rafbílum, fáðu tilboð í hleðslustöð og ráðgjöf við uppsetningu.
LÁTTU HEILLAST AF GLÆSILEGRI HÖNNUN
Láttu heillast af nútímalegri hönnun Peugeot 508 station PHEV, Peugeot 508 sem var kosinn Bíll ársins á Íslandi í sínum flokki. Peugeot 508 station PHEV er nútímalegur að innan sem utan. Að utan er það tignarlegur framendi, skarpar línur, djarft útlit og einstakt skottrými gerir Peugeot 508 station PHEV einstaklega nútímalegan.
Innra rýmið er fullkomið; nútímalegt og notendavænt þar sem nýjasta kynslóð af i-Cockpit innréttingu sérhönnuð fyrir tengiltvinn rafbíl leikur lykilhlutverk. Notagildi og þægindi fyrir ökumann eru höfð að leiðarljósi þar sem öll stjórntæki, mælar og skjáir eru í sjónlínu ökumanns.
EINSTÖK ALCANTARA® SÆTI
Peugeot 508 station PHEV tengiltvinn í GT útfærslu er búinn einstöku Alcantara áklæði.
SÝNILEGUR RAFMAGNAÐUR AKSTUR
Efst í framrúðunni er ljós sem er sýnilegt utan frá gefur þannig til kynna þegar þú ekur bílnum á 100% hreinu rafmagni.
TENGILTVINN MERKI Á BÍL
Peugeot 508 station PHEV kemur með HYBRID merkingu sem er mjög sýnileg í umferðinni og staðfestir að þú gerir vel við umhverfið.
Þú sest inn í fullkomin stafrænan heim í Peugeot 508 station PHEV þar sem i-Cockpit innréttingin er í lykilhlutverki. Notagildi og þægindi eru í fyrirrúmi þar sem öll stjórntæki, mælar og 10" HD snertiskjár eru í sjónlínu ökumanns og þú getur stjórnað ákveðnum aðgerðum í stýrinu. Sportstýri i-Cockpit eykur stjórn og veitir næmara viðbragð.
Peugeot 508 station PHEV er hannaður fyrir óviðjafnanlega akstursupplifun og lúxus. Peugeot 508 station PHEV er með einstaklega þægilegum sætum og er fáanlegur með fjölbreyttum stillingum fyrir nudd ásamt FOCAL® Hi-Fi hljóðkerfi sem býður upp á einstakan hljóðheim.
Komdu og keyrðu Peugeot 508 station PHEV og stökktu inn í næstu kynslóð af tækni.
KRAFTMIKIL PHEV TENGILTVINNAFLRÁS MEÐ 300 V LITHIUM-ION RAFHLÖÐU
MIKIL DRÆGNI OG KRAFTUR Á 100% HREINU RAFMAGNI
Stærð drifrafhlöðunnar er 11,8 kWh og drægni hennar í 100% rafmagnsstillingu er 54 km.
Drifrafhlaðan er staðsett undir aftursætinu og hefur því ekki áhrif á farþega- eða skottrými.
Aðgerðin „e-SAVE“ gerir ökumanni kleift að spara rafmagn til síðari nota t.d. ef síðar þarf að aka á svæði sem eingöngu er ætlað fyrir rafmagnsbíla.
HEIMAHLEÐSLA
Hleðslutími Peugeot 508 PHEV er eftirfarandi:
ÖFLUGRI HLEÐSLUSTÖÐ HEIMA EÐA Í VINNU
Þú getur valið öflugri hleðslustöðvar til að auka hleðsluhraða.
HLEÐSLA Á ALMENNUM HLEÐSLUSTÖÐVUM
Hvort sem þú ert í vinnu eða á ferðinni þá eru ýmsir kostir í boði varðandi hleðslu. Kynntu þér hleðslustöðvar á Íslandi hjá mismunandi dreifingaraðilum.
Hér eru helstu upplýsingar um hleðslutíma og hvernig Peugeot hefur hannað bílinn til að hann sé eins einfaldur í hleðslu og kostur er. Söluráðgjafar Peugeot veita alla ráðgjöf um hleðslu og uppsetningu hleðslustöðva. Hleðslutími getur verið breytilegur af margvíslegum ástæðum t.d. eftir því hvernig tengillinn er, eftir því hversu öflug hleðslustöð er notuð og hversu öflug hleðslustýring bílsins er. Einnig hefur hitastig rafhlöðu og útihitastig ásamt álagi hleðslustöðvarinnar áhrif. Sérfræðingar mæla með hleðslu, raf- og tengiltvinnbíla með heimahleðslustöðvum. Venjulegir heimilistenglar eru ekki ætlaðir til langtímahleðslu.
Hleðsluinnstungan er staðsett á vinstra afturbretti. Hleðslukapallinn sem fylgir bílnum er geymdur í sérstöku hólfi í skotti og hefur ekki áhrif á skottrými.
Ljós við hleðsluinnstungu bílsins gefur til kynna hvort hleðsla sé í gangi eða hvort bíllinn sé fullhlaðinn. Tíminn sem þarf til að hlaða rafhlöðuna er breytilegur eftir því hvar þú hleður og hversu öflugt hleðslutækið er. Hikaðu ekki við að spyrja söluráðgjafa Peugeot um allt sem viðkemur raf- og tengiltvinn rafbílum, fáðu tilboð í hleðslustöð og ráðgjöf við uppsetningu.
Stærð drifhlöðunnar í framdrifnum Peugeot 508 station PHEV er 11.8 kWh. Drægni hennar skv. WLTP mælingu í 100% rafmagnsstillingu er allt að 54 km sem hentar einstaklega vel í allan daglegan akstur þar sem meðalakstur Íslendinga er 40 km á dag. Hér fyrir neðan eru helstu þættir sem hafa áhrif á drægni.
Peugeot 508 station PHEV kemur með nýjustu kynslóð af öryggis- og aðstoðartækni. Ökumannsvaki (Driver Alert) og veglínuskynjun (Lane Departure Warning), sjálfvirk neyðarhemlun (Active Safety Break), hraðastillir (Cruise Control) með hraðatakmarkara (Speed Limiter), bakkmyndavél (Visiopark 180°), nálægðarskynjarar að framan og aftan og ökumannsvaki eru hluti af ríkulegum búnaði í Peugeot 508 station PHEV. Ríkulegur öryggisbúnaður og aðstoðartækni gerir Peugeot 508 station PHEV einstaklega öruggan fyrir þig og þína.
Brimborg hefur tekið saman ítarlegt efni um um algengar spurningar er viðkemur raf- og tengiltvinn rafbílum. Smelltu á bláu kassana hér fyrir neðan fyrir nánari upplýsingar.
Þú getur einnig nálgast eftirfarandi upplýsingar með einföldum hætti
Aukin þjónusta
Vertu með yfirsýn með MyPeugeot® appinu. Í MyPeugeot appinu er hægt að skoða eftirfarandi upplýsingar þegar þér hentar:
Þú getur einnig stjórnað þessum aðgerðum beint í gegnum appið