Peugeot kynnir glænýjan, sparneytinn, rúmgóðan sjö sæta Peugeot 5008 með nýjum, stórglæsilegum
framenda þar sem nýtt grill, LED framljós með háuljósaaðstoð og LED
afturljós leika aðalhlutverk. Peugeot 5008 er rúmgóður 7 sæta bíll með þrjú stök
sæti í annari sætaröð á sleða og þremur Isofix festingum. Auðvelt er að fella niður öftustu
sætaröðina svo að farangursrýmið verði rúmgott. Ríkulegur staðalbúnaður
einkennir nýjan Peugeot 5008. GPS vegaleiðsögn, bakkmyndavél
með 180° víddarsýn, 10" margmiðlunarskjár, Mirror Screen speglun,
ásamt nýjustu öryggistækni, til að mynda sjálfvirk neyðarhemlun. Glænýr Peugeot 5008
er með nýjustu kynslóð af i-Cockpit® innréttingu sem hefur verið uppfærð og
sérhönnuð til að veita einstaka akstursupplifun.
SPARNEYTINN, RÚMGÓÐUR 7 SÆTA BÍLL MEÐ 7 ÁRA ÁBYRGÐ
Glænýr Peugeot 5008 er sparneytinn, rúmgóður 7 sæta bíll með þrjú stök stök
sæti í annari sætaröð á sleða og þremur Isofix festingum. Glænýr Peugeot 5008 er búinn
nýjustu kynslóð sparneytinna PureTech bensín- eða BlueHdi dísilvéla. Peugeot 5008 er með nýrri
8 þrepa sjálfskiptingu sem sparar allt að 7% af eldsneyti miðað við eldri 6 þrepa sjálfskiptingar.
Eldneytiseyðsla í blönduðum akstri er frá aðeins 5,2 l/100 km skv. WLTP mæligildi.
NÚTÍMALEG HÖNNUN OG NÝJASTA KYNSLÓÐ AF TÆKNI
Glænýr Peugeot 5008 sker sig úr með vel heppnaðri nútímalegri og notendavænni
hönnun að innan og utan. Að utan er það kröftugur, tignarlegur framendi með
LED ljósum með háuljósaaðstoð og nýtt grill sem setja sterkan svip á bílinn.
Innra rýmið er fullkomið; nútímalegt og notendavænt þar sem sætin sjö með þremur
stökum sætum í miðjuröð sem eru öll á sleða með þremur Isofix festingum leikur
lykilhlutverk. Peugeot 5008 er með nýjustu kynslóð af i-Cockpit innréttingu sem hefur
verið sérhönnuð með notagildi og þægindi fyrir ökumann að leiðarljósi þar sem öll
stjórntæki, mælar og skjáir eru í sjónlínu ökumanns.
EINSTÖK VEGHÆÐ – 23,6 CM
Glænýr Peugeot 5008 er með einstaklega mikla veghæð, 23,6 cm undir lægsta punkt
sem er með því hæsta í flokki sjö sæta bíla og háa sætisstöðu svo að það er
einstaklega þægilegt að ganga um hann fyrir barnmargt fjölskyldufólk.
RÍKULEGUR STAÐALBÚNAÐUR
Peugeot 5008 er ríkulega búinn þar sem m.a. má finna bakkmyndavél með 180° víddarsýn,
nálægðarskynjara að framan og aftan, stafrænt mælaborð með stillanlegu viðmóti,
GPS vegaleiðsögn, 10” margmiðlunarskjá, Apple Carplay snjallsímatengingu,
veglínuskynjun, veglínustýringu og ökumannsvaka. Peugeot 5008 er fáanlegur með Grip Control
spólvörn sem er fimm mismunandi akstursstillingar til að takast á við mismunandi akstursaðstæður,
nýrri næturmyndavél sem skynjar vegfarendur eða dýr í allt að 200 m fyrir framan ökutækið og
akstursaðstoð sem er innbyggð myndavél á stuðara og í framrúðu hjálpar ökumanni við að aðlaga
hraðann eftir umferðaþunga og passar upp á að halda öruggu bili á milli bíla.
7 ÁRA ÁBYRGÐ Á PEUGEOT BÍLUM
Gæði Peugeot eru einstök enda í boði með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum. Ábyrgðin er
aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi ferli
framleiðenda hvað varðar þjónustuskoðanir.
Kynntu þér allt um glænýjan, rúmgóðan Peugeot 5008 hér á vefnum. Í Vefsýningarsal er að
finna alla lausa bíla á lager og í pöntun. Þegar þú finnur draumabílinn,
sendir þú fyrirspurn og söluráðgjafi svarar um hæl. Einn af mörgum kostum
forpöntunar er að þú getur sett þinn draumabíl saman með
aðstoð söluráðgjafa Peugeot.
Einfaldaðu bílakaupin. Láttu okkur sjá um allt, uppítöku á gamla bílnum og
hagstæða fjármögnun.